Fréttir
Lokun skrifstofu í sumar
Skrifstofa skólans verður opin kl. 9:00-14:00 til og með 14. júní. Staðsetning skrifstofunnar er í Myllubakkaskóla, S: 420-1450 netfang: myllubakkaskoli@myllubakkaskoli.is Skrifstofan opnar aftur fimmtudaginn 8. ágúst. Skólasetning verður föstudaginn 23. ágúst 2024. Starfsmenn Myllubakkaskóla óska nemendum og fjölskyldum þeirra gleðilegs sumars....
Lesa meiraKúlubrautakeppni
Í dag var haldin kúlubrautakeppni hjá nemendum í 5. bekk. Nemendur höfðu safnað saman efnivið í um tvo mánuði á undan til að hafa úr sem mestu að moða. Þeir söfnuðu aðallega tómum eldhús- og salernisrúllum, Pringels og Piknik dollum. Nemendum var skipt upp í tveggja til þriggja manna lið. Öllum liðum var afhentur bakki með efnivið, skærum, límba...
Lesa meiraVíðavangshlaup Myllubakkaskóla
Víðavangshlaup Myllubakkaskóla 2024 fór fram föstudaginn 17. maí.Allir nemendur skólans hlupu eða gengu tæplega þriggja kílómetra hring í hverfinu í góðu veðri og stóðu sig alveg frábærlega. Mikil gleði og jákvæðni var áberandi og voru nemendur duglegir að hvetja hvert annað áfram. Verðlaunað er fyrir fimm efstu sætin á hverju skólastigi í stúlkna-...
Lesa meiraMylluvísjón
Miðvikudaginn 15. maí var Mylluvísjón, söngkeppni nemenda Myllubakkaskóla, haldin fyrir húsfylli í Frumleikhúsinu. Það var mikið gleðiefni að geta aftur boðið upp á þennan viðburð og er skólinn afar þakklátur þakklátur Leikfélagi Keflavíkur fyrir lánið á leikhúsinu þeirra frábæra. Keppnin var algjörlega glæsileg, stútfull af hæfileikaríkum og hugrö...
Lesa meiraHæfileikahátíð grunnskólanna
Föstudaginn 3. maí fór fram Hæfileikahátíð grunnskólanna í Hljómahöll. Þessi hátíð er liður í BAUN, barna- og ungmennahátíð í Reykjanesbæ sem er haldin 2. maí til 12. maí 2024. Á hátíðinni eru börn, ungmenni og fjölskyldur settar í forgang með fjölbreyttum og skemmtilegum hætti.Nemendur í 5. bekk sýndu atriði fyrir hönd Myllubakkaskóla og Kristín I...
Lesa meiraSkákmót grunnskóla á Suðurnesjum
Í vikunni fór fram Suðurnesja skákmót grunnskóla. Það voru 13 nemendur að keppa fyrir hönd skólans, fimm í flokk fyrir 1. - 4. bekk, fjórir í flokki fyrir 5. - 7. bekk og fjórir fyrir 8. - 9. bekk. En í heildina voru þátttakendur á mótinu yfir 60. Af þeim sem tóku þátt náði Elvar Þór Sigurðsson í 5. bekk frábærum árangri, tapaði ekki skák og vann ...
Lesa meiraSkólahreysti 2024
Myllubakkaskóli keppir í Skólahreysti kl. 14:00 miðvikudaginn 17. apríl...
Lesa meiraSumarfrístund fyrir börn fædd 2018
Frístundaheimili grunnskóla opna frá 9. ágúst 2024 fyrir börn fædd 2018...
Lesa meiraAfreksviðurkenning Lionshreyfingarinnar í Keflavík
Lena Praznowska nemandi í 6. bekk Myllubakkaskóla fékk afreksviðurkenningu Lions hreyfingarinnar í Keflavík fyrir plakatið sitt í Alþjóðlegu friðarveggspjaldahreyfingu Lions þar sem hennar mynd þótti bera af en þemað í ár var Þorðu að láta þig dreyma. Hér er Lena með plakatið sitt ásamt myndlistarkennaranum sínum Gunnhildi Þórðardóttur....
Lesa meiraOpið hús 22. mars kl. 12:30 - 14:00
Kæru foreldrar, forráðamenn og aðrir íbúar ReykjanesbæjarÞað hefur ekki farið framhjá þeim sem tengjast Myllubakkaskóla að skólinn hefur gengið í gegnum krefjandi tímabil sem hefur reynt á starf skólans og alla hlutaðeigandi, en metnaður starfsfólks og jákvæðni allra sem hafa komið að þessu verkefni hefur gert það léttbærara. Myllubakkaskóli á stað...
Lesa meiraMyllubakkaskóli er hnetulaus skóli
Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.