• Skrifstofan er opin frá:

    Mán - fim: 7:45 - 15:30
    Fös: 7:45 - 14:00

  • Sími á skrifstofu

    420 1450

25. september 2023

Málþing um snjallsímanotkun í grunnskólum, 27. september í Hljómahöll

Lýðheilsu- og Menntaráð Reykjanesbæjar munu halda málþing í Hljómahöll þann 27. september nk. undir yfirskriftinni "Snjallsímanotkun og samfélag ungmenna í grunnskólum Reykjanesbæjar". Helsta markmið með málþinginu er að ræða opinskátt um snjallsímanotkun og samfélagsmiðla með það í huga að stuðla að bættri líðan barna og ungmenna. Með þessu samtali getum við sem samfélag vonandi fundið farsæla lausn á því hvernig best er að haga umgengni við snjallsíma með hag barnanna okkar í forgrunni.
Málþingið er milli kl. 14-17 og hefst með fyrirlestrum um málefnið en endar með verkefnavinnu gesta.
Fyrirlesarar eru eftirfarandi aðilar:
Bergþóra Þórhallsdóttir, verkefnastjóri í upplýsingatækni hjá Kópavogsbæ
Daníel Örn Gunnarsson, framhaldsskólanemi
Grímur Atlason, framkvæmdastjóri Geðhjálpar
Gróa Axelsdóttir, skólastjóri Stapaskóla
Magnús Þór Jónsson, formaður Kennarasambands Íslands
Skúli Bragi Geirdal, verkefnastjóri hjá Fjölmiðlanefnd

Við hlökkum til að sjá ykkur sem flest.

Fyrir hönd Lýðheilsu- og Menntaráðs Reykjanesbæjar
Bjarney Rut og Guðný Birna

Myllubakkaskóli er hnetulaus skóli
Hnetulaus

Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.

  • Foreldrafélag Myllubakkaskóla
  • FFGÍR
  • Reykjanesbær - Menntastefna
  • Reykjanesbær