Fjölþjóðaver
Við Myllubakkaskóla er fjölþjóðaver þar sem kennsla nemenda með annað móðurmál en íslensku fer fram. Nemendur tilheyra allir almennum bekk og hafa sinn umsjónarkennara en fara í verið til að öðlast meiri orðaforða og færni í íslensku. Þetta getur átt við börn af erlendum uppruna eða íslensk börn sem dvalið hafa í útlöndum þorra ævi sinnar.
Kennsla í íslensku sem annað tungumál er fjölbreytt og samhliða íslenskunáminu er menningarfærni kennd ásamt því að þróa þekkingargrunn, örva námsgetu og stuðla að vellíðan nemenda.
Í aðalnámskrá grunnskóla, greinasvið 2013 segir m.a. að hæfni í íslensku sé meginforsenda þess að nemendur verði virkir þátttakendur í samfélagi lýðræðis og jafnréttis og geti lagt stund á almennt nám í íslenskum skólum. Hæfniviðmið eru sett fram í þremur flokkum, þ.e. lestur, bókmenntir og ritun.
Skipulag fjölþjóðavers
Starfsmenn fjölþjóðavers vinna í samstarfi við umsjónarkennara og deildarstjóra stundatöflu fyrir nemendur í fjölþjóðaveri. Nemandi fylgir sínum bekk eins og kostur er og kennsla tekur mið að þörfum hvers og eins.
Móttökuferli og forvinna skólans fyrir móttökuviðtal
- Umsjónarkennari er valinn
- Ákveðið er hver á að sjá um leiðsögn um skólann fyrir nemendur og foreldra hans.
- Túlkur er pantaður ef þörf er á því.
- Umsjónarkennari og starfsmaður fjölþjóðavers boða nemanda og foreldra/forráðamenn í móttökuviðtal.
- Innritunarblað, helst á móðurmáli nemandans tekið til.
Móttökuviðtal
Farið er yfir innritunarblað og upplýsinga er aflað um nemandann.
Áður en skólaganga hefst þarf nemandi að hafa:
- Dvalarleyfi
- Tryggingar
- Heilbrigðisvottorð
- Gögn frá fyrri skóla
Kynna þarf:
- Starfsemi skólans - kynning (húsnæði, kennara, mötuneyti o.fl.)
- Samstarf heimilis og skóla (Mentor, samskiptabók, foreldrafélag o.fl.)
- Símanúmer skólans
- Heimasíðu skólans
- Facebook-síðu skólans
- Nesti, íþróttaföt, sundföt
- Hvernig á að tilkynna forföll og biðja um leyfi
- Hvert á að snúa sér ef vandamál koma upp
- Fjölþjóðaver
- Fyrsta skóladaginn og staðfesta hvenær hann er áætlaður.
- Næsta fund (ef við á)
Fyrstu skóladagarnir
- Umsjónarkennari undirbýr bekkinn og myndar vinateymi.
- Gott er að merkja hluti í skólastofunni
- Brýna fyrir nemendum að tala íslensku
- Halda utan um nám nemandans og fylgast með framförum. Aðrir kennarar láta umsjónarkennara vita hvernig gengur.
- Vera í góðum samskiptum við foreldra/forráðamenn
- Stöðumat lagt reglulega fyrir.
- Námsáætlun
Myllubakkaskóli er hnetulaus skóli
Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.