Árshátíð
Árshátíð Myllubakkaskóla verður haldin föstudaginn 4. apríl í Íþróttahúsinu við Sunnubraut og hefst kl. 13:00.
Nemendur mæta kl. 12:45 nema umsjónarkennari hafi nefnt annan tíma. Einhverjir bekkir mæta einnig á æfingu um morguninn og lætur umsjónarkennari vita með tímasetningu.
Þennan dag er engin kennsla og lokað í frístundaskólanum.
Foreldrar/forráðamenn og aðrir aðstandendur eru hjartanlega velkomnir.
Eftir sýningu er boðið upp á kaffi, svala og bekkelsi í B-sal íþróttahússins.
Myllubakkaskóli er hnetulaus skóli
Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.