Opinn dagur
Opinn dagur verður á milli kl. 12:30 - 13:10 föstudaginn 19. apríl hjá 1. - 7. bekk í Myllubakkaskóla. Þar geta forráðamenn og aðrir aðstandendur komið og séð hvað börnin hafa verið að búa til og gera á þemadögum. Af okkar reynslu er skemmtilegasti hlutinn að fá foreldra og aðra ættingja í heimsókn til að sýna hvað þau hafa verið að gera, væri því frábært að þið kæmust sem flest á þessum tíma á föstudaginn.
Myllubakkaskóli er hnetulaus skóli
Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.